An official website of the European Union How do you know?      
European Commission logo
JRC Publications Repository Menu

Opinber stefnumótun og stjórnsýsluhvatar er varða vistheimt á Íslandi

cover
Á Íslandi er endurheimt raskaðra vistkerfa málaflokkur sem tilheyrir nokkrum ráðuneytum og opinber stefnumótun hans ekki auðsýnileg í stjórnsýslunni. Við töldum því tímabært að taka saman hvaða stefnumið, lög og reglugerðir stjórnvalda eiga við þennan málaflokk og gera stuttlega grein fyrir helstu áhrifum þeirra á vistheimtarstarfið. Í því augnamiði fórum við yfir margvísleg lög, reglugerðir og stefnumótunarskjöl er tengjast landgræðslu, skógrækt, umhverfisvernd og landbúnaði og reyndum að draga fram þætti er varða vistheimt eða skyld efni. Þrátt fyrir nokkra áherslu á vistheimt í stefnu stjórnvalda um framkvæmd alþjóðlegra samninga á sviði umhverfismála, gætir þess lítt í íslenskum lögum og reglugerðum. Leit í laga- og reglugerðarsöfnum skilaði aðeins einni niðurstöðu þar sem minnst var á endurheimt vistkerfa eða vistheimt; reglugerð um Vatnajökulsþjóðgarð (nr. 608/2008). Þó túlka megi ýmis ákvæði í lögum og öðrum reglugerðum sem svo að hvatt sé til aðgerða er geti leitt til vistheimtar, er það ekki tekið fram beinum orðum. Þá eru grundvallarlög á þessu sviði, lög um landgræðslu (nr. 17/1965) og skógrækt (nr. 3/1955) mjög komin til ára sinna og endurspegla því lítt nýjar áherslur í umhverfismálum. Endurskoðun þeirra er löngu tímabær og þar ættu að vera skýr ákvæði um endurheimt vistkerfa. Auk þess væri æskilegt að huga að ákvæðum um endurheimt vistkerfa við endurskoðun annarra lagabálka¿t.d. um náttúruvernd, mat á umhverfisáhrifum og um landshlutaverkefni í skógrækt¿ enda viðurkennt af alþjóðasamfélaginu að endurheimtin sé mikilvægur þáttur í að snúa við þeirri þróun að æ meira sé gengið á líffræðilega fjölbreytni og vistkerfi.
2013-04-05
Agricultural University of Iceland
JRC63693
978-9979-881-08-7,   
http://pdfvef.oddi.is/landgraedslan/vistheimt_a_islandi/#/4/zoomed,    https://publications.jrc.ec.europa.eu/repository/handle/JRC63693,   
Language Citation
NameCountryCityType
Datasets
IDTitlePublic URL
Dataset collections
IDAcronymTitlePublic URL
Scripts / source codes
DescriptionPublic URL
Additional supporting files
File nameDescriptionFile type 
Show metadata record  Copy citation url to clipboard  Download BibTeX
Items published in the JRC Publications Repository are protected by copyright, with all rights reserved, unless otherwise indicated. Additional information: https://ec.europa.eu/info/legal-notice_en#copyright-notice